Stewart meiddi sig í súludansi

Stewart meiddi sig í súludansi
Leikkonan Kristen Stewart varð fyrir minniháttur meiðslum við upptökur á nýjustu kvikmynd hennar, Welcome To The Rileys, þegar verið var að skjóta súludansatriði.

Í myndinni leikur Stewart 16 ára nektardansmær og segir hún að súludansinn hafi reynst miklu erfiðari en hún átti von á. „Ég var marin á fótunum og rispaði mig alla,“ sagði Stewart og játaði að hún hafi átt mjög erfitt með að afklæðast fyrir framan myndavélarnar.

Skrifaðu athugasemd

code Sérðu ekki tölurnar?
Smelltu hér til að fá nýjar.