
Óskarsverðlaunahátíðin verður haldin í 82. sinn 7. mars næstkomandi og í gær voru kynntar tilnefningar í öllum flokkum. Veðbankar heimsins eru þegar farnir að spá í spilin og eru flestir nokkuð sammála um hverjir séu líklegastir til að hljóta helstu verðlaunin.
Avatar þykir langsigurstranglegasta myndin og Jeff Bridges og Sandra Bullock þykja líklegust til að hljóta styttuna fyrir besta aðalleik. Veðbankar eru hins vegar ekki á einu máli um hvort Kathryn Bigelow (The Hurt Locker) eða James Cameron (Avatar) verði besti leikstjórinn.
Hér að neðan má til gamans sjá þá stuðla sem veðbankinn Betsson gefur á Óskarsverðlaunin í helstu flokkum. Gaman væri að heyra hvernig lesendur spá verðlaununum í ár.
Besta kvikmynd
Avatar – 1,40
The Hurt Locker – 3,00
Up In The Air – 10,00
Inglourious Basterds – 20,00
An Education – 20,00
District 9 – 25,00
Precious – 46,00
Up – 50,00
A Serious Man – 50,00
The Blind Side – 100,00
Besti leikari
Jeff Bridges (Crazy Heart) – 1,30
George Clooney (Up In The Air) – 5,00
Colin Firth (A Single Man) – 12,00
Jeremy Renner (The Hurt Locker) – 16,00
Morgan Freeman (Invictus) – 22,00
Besta leikkona
Sandra Bullock (The Blind Side) – 1,70
Meryl Streep (Julie and Julia) – 2,70
Carey Mulligan (An Education) – 6,00
Gabby Sidibe (Precious) – 12,00
Helen Mirren (The Last Station) – 25,00
Besti leikstjóri
James Cameron (Avatar) – 1,80
Kathryn Bigelow (The Hurt Locker) – 2,00
Jason Reitman (Up In The Air) – 20,00
Quentin Tarantino (Inglourious Basterds) – 20,00
Lee Daniels (Precious) – 26,00
Djöfull er hann fokkin ljótur maður
Er það ekki bara einhver öfundsýki í óaðlaðandi rauðsokkum. Hverjum er ekki sama hvað þessum...
Hún er svo töööfff
Terry Richardson er svalasti ljósmyndari ever. Hann er með þessarri töku búinn að hirða síðasta...
Alveg æðisleg og svona líka skemmtilega rugluð:)