Ein frægasta Disney perla allra tíma- Bambi veitir hönnuðinum og umhverfissinnanum Stellu MacCartney innplástur í nýjustu auglýsingaherferð hennar. Herferðin er ljósmynduð af hinum fræga Ryan McGinley í Worchestershire á Englandi og skartar hinni fallegu Sigrid Agren sem er einnig andlit Chloé og ck Calvin Klein.
Af hverju Bambi og félagar ? MacCartney sagði í nýlegu viðtali við tímaritið Womens Wear Daily: að hún hafi alltaf verið mikill Bamba aðdáendi og að ævintýrið minnti hana ætíð á móður hennar: Ljósmyndaran Lindu MacCartney sem lést úr brjóstakrabba árið 1998 og var hún einnig mikil umhverfis og nátturusinni.
Monitor elskar þessa einstaklegu fallegu og vel gerðu herferð þar sem kvennleiki og æska mætast.
www.stellamccartney.com
Þessi forsíða prýðir desemberhefti Ítalska Vogue. Tileinkuð veraldarvefnum, samskiptamiðlinum Twitter, og tískubloggurum, sem eru að verða hinar nýju fyrirmyndir í tískuheiminum.
Myndirnar tekur Steven Meisel og þarnar má meðal annars greina ofurfyrirsæturnar Gisele Bundchen, Lara Stone, Christy Turlington og Natalia Vodianova.
Flott forsíða og í takt við tíðarandann
Álfrún
I vikunni var að opna mjög sniðug vefsíða sem gerir tískuþyrstum Íslendingum auðveldara um vik að nálgast eitthvað af því vöruúrvali sem Svíþjóð hefur upp á að bjóða.
Elísabet Gunnarsdóttir er tískuljón, búsett í Halmstad í SuðurSvíþjóð, og stendur á bak við vefsíðuna http://elisabetgunnars.tk/ og býður hún fram þjónustu sína við kaup og sendingu af fatnaði, skóm og annarri vöru frá ýmsum búðum og merkjum frá "härliga Sverige".
Einnig birtir Elísabet myndir af hlutum sem henni finnst flottir og eru nýkomnir í búðirnar hjá frændum okkar í Skandinavíu. Annaðhvort er hægt að panta hluti frá netinu og senda á hana og hún kemur vörunum áleiðis til Íslands eða senda Elísabet í verslunarleiðangur eftir rétta kjólnum eða skónum.
Inn á síðunni er hægt að nálgast netsíður hjá helstu búðunum eins og til dæmis H&M, MONKI, Weekday, Ginu Tricot o.fl. Ekki má gleyma að nefna að það er mikið úrval af budduvænum sænskum búðum og íslenska krónan stendur sig best í augnablikinu gagnvart þeirri sænsku.
Flott framtak og frábær leið til að fá sænska tísku inn lúguna !
Ég get ekki nógu oft mælt með Monki og Weekday
Álfrún