Það var öllu tjaldað til þegar Sonia Rykiel frumsýndi línuna sem hún hannaði fyrir H&M í París á dögunum. Tískusýningin var vægast sagt stórfengleg og bar sömu merki og fatnaður Rykiel gerir, gleði og hamingja !
Sýningin sjálf var haldin í Grand Palais, þar sem búið var að gera líkan af Effel turninum og parísarhjóli. Tískusýningin var eins og skrúðganga með blöðrum, lúðrasveit og dansi og gestum sýningarinnar virtist skemmt yfir herlegheitunum. Sjón er sögu ríkari og endilega kíkið á myndbandið hér fyrir neðan.
Annars er fyrsti hluti Rykiel línunnar kominn í búðir H&M, nærfatalínan, og hún lofar góðu. Hún er í anda stríðsáranna, með nærbuxum með háu mitti, gerðarlegum brjóstarhöldurum, sokkaböndum og korselettum. Nærfatnaðurinn virðist vandaður og úr góðum efnum það sem ég hef séð.
Sonia Rykiel línan fæst í öllum búðum H&M og er á mun viðráðanlegra verðibili en Jimmy Choo línan (sem ennþá er til nóg af í búðunum hér en flestum virðast blöskra verðið, til dæmis 2000 NOK fyrir leðurtösku ú H&M ?!)
Mæli eindregið með að kíkja á Soniu Rykiel !
Álfrún