Sendu inn frétt!

Lumarðu á heitu slúðri eða frétt?
Tókstu krassandi mynd af einhverri stjörnu?
Sendu okkur póst hér!

Karl Lagerfeld skiptir um skoðun

Karl Lagerfeld skiptir um skoðun
Hinn svart - og hvítklæddi fatahönnuður með silfurtaglið, Karl Lagerfeld yfirhönnuður Chanel, hefur látið misgáfulegar athugasemdir um fyrirsætur og holdafar flakka að undanförnu. Nú þegar tískuheimurinn virðist vera að opna augun fyrir því að ofur grannvaxnar fyrirsætur eru ekki hinar bestu fyrirmyndir fyrir hina "venjulegu" stelpu þá hefur Herra Lagerfeld staðið fast á sínu. Hann lét meðal annars út úr sér þessi ummæli í viðtali við blaðið Marie Clarie í haust
 
" enginn vill horfa á þykkar konur. Það eru bara latar húsmæður sem borða snakk allan daginn og horfa á sjónvarpið sem kvarta yfir of grönnum fyrirsætum". 

Nú virðist silfurrefurinn hins vegar vera búin að skipta um skoðun og mun hann taka myndaseríu fyrir janúarhefti
V-magazine sem helgað verður líkömum af öllum stærðum og gerðum. Í myndaseríu Lagerfelds verður hins vegar örmjóum fyrirsætum skipt út fyrir "plus size models".

Þetta verður fróðlegt að fylgjast með enda Lagerfeld þekktur fyrir ögra.

Einnig er gaman að því að V magazine, sem er þekkt fyrir að vera mikið hátískublað, ætli að taka upp þetta mikilvæga mál um líkamsímyndir í tískuheiminum og gaman verður að sjá útkomuna.

Álfrún